Kettering – Palestína

Utandeildarliðið Kettering er komið í­ fjórðu umferð enska bikarsins. Þar tekur liðið á móti Fulham á heimavelli. Undir eðlilegum kringumstæðum væri slí­kur leikur sýndur í­ beinni útsendingu í­ ensku sjónvarpi. Sjónvarpsmönnum finnst svo krúttlegt þegar utandeildarliðin láta úrvalsdeildarliðin svitna…

Þessi leikur verður hins vegar ekki á dagskrá samkvæmt nýjustu fregnum. Kettering mun hafa boðist til að afsala sér samningsbundnum greiðslum vegna útsendingar, en allt kemur fyrir ekki.

Það er í­ raun bara ein rökrétt skýring á því­ hvers vegna Kettering – Fulham fær ekki náð fyrir augum stjórnenda sjónvarpsstöðvanna… á treyju félagsins er auglýsing þar sem fólk er hvatt til að styðja neyðarhjálp til Palestí­nu. Hana má sjá hér.

Íslenskir Palestí­nuvinir eru þó amk. komnir með lið til að styðja í­ næstu umferð…