Davíð Þór komst vel frá fyrsta keppniskvöldinu í Gettu betur, eins og búast mátti við. Eva María var líka merkilega fumlaus miðað við fyrsta þátt. Yfirleitt eiga nýir spyrlar erfitt uppdráttar fyrstu kvöldin. Hún lenti aðeins í smáklandri með einn hraðaspurningapakkann og í sjálfu sér alger óþarfi að reyna að fara of geyst í byrjun.
Spurningarnar voru e.t.v. með þyngra móti fyrir fyrstu umferð.
Liðin voru svo sem ekki sterk. ME gæti verið sjónvarpslið á góðum degi, en við hljótum að sjá öflugari keppendur á næstu dögum.