Highland Park
…er eitt allra besta viský sem til er, en hvers vegna í ósköpunum verður maður svona slappur af því daginn eftir? Fékk mér u.þ.b. einn einfaldan og einn tvöfaldan yfir sjónvarpinu í gær á meðan við Palli vorum að púsla saman nokkrum barmmerkjum fyrir pönkarann, en í dag líður mér eins og ég hafi verið úti á galeiðunni fram undir dagrenningu. Ljótt, ljótt sagði fuglinn.
* * *
Sá í Mogganum að Aðalsteinn Þorvaldsson alias Addi pu, fyrrum bekkjarbróðir minn, Palestínufari og höfuðsnillingur hafi sótt um 1/2 brauð við Seltjarnarneskirkju. Það væri glapræði hjá Seltirningum ef þeir gengju fram hjá slíkum meistara. Aðalstein í biskupinn!