Fjölskyldan á Mánagötu 24 heldur áfram að vinna gegn kreppunni. Á gær fengum við smið til að gera þetta fína garðhlið fyrir okkur – auk þess sem hann boltaði garðbekkinn niður í stéttina.
Hugsunin á bak við þá festingu er sú að koma í veg fyrir að krakkar geti slasað sig á klifri – en jafnframt minnka líkurnar á að hann endi á bálinu ef mótmælendurnir kynnu nú að fikra sig af Austurvelli og í Norðurmýrina…