Mætti í stórskemmtilegt sextugsafmæli Birnu Þórðardóttur í Iðnó í dag. Hitti þar Luton-mann sem var nokkuð hnugginn yfir fallinu sem blasir við okkur. Gat þó huggað hann með því að við hefðum unnið Port Vale, 1:3 á útivelli.
Ekki man ég hvenær við unnum síðast deildarleik á útivelli.
Níu stig á töflunni. Kannski komumst við í tveggja stafa tölu á þriðjudaginn – það væri ekki amalegt.