Daginn eftir að Jóhanna Sigurðardóttir kvartaði yfir því að of skammur tími væri til stefnu að ljúka mikilvægum málum á þingi fyrir kosningar, kynna þingflokksformenn stjórnarflokkanna, Framsóknar og Frjálslynda flokksins þetta þingmál um breytingar á kosningalögum.
Hér er um að ræða barnalegt sjónarspil. Flutningsmenn málsins gera sér fullkomlega grein fyrir því að málið verður ekki afgreitt á þessu þingi. Það er einfaldlega geggjun að láta sig dreyma um að gera umdeildar grundvallarbreytingar á kosningalögum fáeinum vikum fyrir kosningar – þegar utankjörfundaratkvæðagreiðsla ætti í raun að vera hafin.
Mugabe myndi kannski reyna slíkt í Zimbabwe – en í íslenskum stjórnmálum á þetta ekki að sjást.
Ég slæ því föstu að þetta frumvarp sé lagt fram af sýndarmennsku frekar en í fullri alvöru, því það er slík hrákasmíð að mér dettur ekki í hug að fólkinu sé alvara. Greinargerðin sem frumvarpinu fylgir gengur einkum út á að telja upp fjölda dæma um mögulegar útfærslur á persónukjöri – enda skipta þær tugum. Síðan er án nokkurs teljandi rökstuðnings stokkið á eina útfærsluna. Það er ekki heil brú í þessu.
Hvað á maður að segja um svona vinnubrögð?
Ég á afskaplega bágt með að vorkenna ríkisstjórn sem kveinkar sér undan tímaskorti og óliðlegri stjórnarandstöðu, þegar menn geta leyft sér svona æfingar.