Siðareglur skjallbandalaga

Skjallbandalög eru þekkt fyrirbæri í­ netsamfélaginu og fram hjá þeim verður lí­klega seint komist.

Engu að sí­ður held ég að það væri mjög til bóta ef þeir sem stunda þessa iðju settu sér einhvers konar siðareglur – sem fælu það í­ sér að menn reyndu í­ það minnsta að fela slóðina…

Tökum dæmi:

Aðalfrétt Pressunnar (í­ þessum rituðum orðum) er „Össur segir Sjálfstæðisflokkinn í­ upplausn!“ – Með öðrum orðum – kjaftaskúmur í­ stjórnarliðinu gefur lí­tið fyrir stjórnarandstöðuna… fréttirnar gerast nú ekki mikið stærri. Hvað næst? Geir Haarde segir rí­kisstjórnina slappa? Aðdáendaklúbbur Duran Duran lýsir frati á Wham?

Nema hvað – á sama tí­ma setur Össur Skarphéðinsson inn færsluna „Pressan flýgur!“ Þar kemur fram að Össuri finnist Pressan vera æði – og að hann hafi allar upplýsingar sí­nar um veröldina frá Eyjunni og Pressunni. Kvartar reyndar yfir því­ að þurfa að lesa á norsku, þar sem miklu betra sé að lesa bara á ensku og í­slensku…

Hér hefðu siðareglur skjallbandalaga komið að góðum notum. Það hefði verið mun minna sjoppulegt ef Össur og Pressan hefðu látið lí­ða eins og 24 klukkustundir á milli skjallgreinanna!