Hvaða lærdóm má draga af úrslitum kvöldsins í Söngvakeppninni?
Jú, í sex neðstu sætunum voru aðildarlönd Evrópusambandsins. Á fjórum efstu sætunum eru þjóðir sem standa utan ESB.
Evrópusambandinu var klárlega hafnað í kvöld – og það í keppni í tónlist, sem er jú tungumálið sem sameinar heimsbyggðina eins og menn vita.
Stærstur er sigur EES-landanna. Ísland og Noregur í tveimur efstur sætum. Ef Liechtenstein hefði verið með, þá er ljóst að það hefði tekið bronsið. Það er væntanlega titringur á æðstu stöðum í Brí¼ssel í kvöld…