Hah! Segið svo að besti og frægasti bloggarinn sé ekki mikilvægur maður á sínum vinnustað! Rétt í þessu var ég að fá nýtt verkefni og meðfylgjandi titil. Ég er sem sagt orðinn: ábyrgðarmaður förgunaraðfanga!
Á því felst að fjórum sinnum á ári á ég að fá skýrslu frá gámafyrirtæki um þyngd sorps frá Minjasafninu, Elliðaárstöð og garðyrkjudeild Orkuveitunnar og setja hana í þar til gerða möppu.
Mamma og Steinunn verða svo stoltar af mér…