Þegar mamma og pabbi byggðu í Frostaskjólinu 1984, keyptu þau skápana frá Axis. Þetta eru fínir skápar, íslensk hönnun og smíði frá einu af langlífari fyrirtækjum landsins. Á næsta ári verða nefnilega 75 ár liðin frá því að Axel Eyjólfsson stofnaði húsgagnasmíðaverkstæðið sitt, þá á Akranesi.
Fyrir nokkrum árum brann eldhúsið hér á Mánagötunni. Við fórum á stúfana að leita að nýrri eldhúsinnréttingu og álpuðumst fyrst inn í IKEA. Þar féllust okkur hendur gagnvart slakri þjónustu og vandræðum við að troða föstum innréttingum inn í pínkulítið rými, til að ná fram hámarksnýtingu. Eftir angistarfulla helgi í Holtagörðum og á heimasíðu IKEA mundi ég eftir skápunum góðu. Við mældum eldhúsið í hólf og gólf og fórum svo með málin til Axis.
Sölumaðurinn/tækniteiknarinn þar skoðaði hugmyndina okkar, leit yfir málin og rissaði svo upp í hvelli nýtt plagg sem sneri á hvolf flestu því sem við höfðum verið að hugsa. Óþarft er að taka það fram að hans hugmyndir voru miklu skynsamlegri og með smávægilegri sérsmíði tókst honum að nýta hvern lófastóran blett í eldhúsinu.
Við keyptum eldhúsinnréttinguna frá Axis og notuðum tækifærið til að skipta út gömlu skápunum í svefnherberginu. Eiríkur smiður, sem fyrirtækið bendir helst á varðandi uppsetningu á innréttingum sínum, kom svo með góðar ábendingar og í samráði við hann settum við upp litlar bókahillur á ganginum, í holrými sem til varð vegna framkvæmdanna.
Kostnaðurinn við að velja íslenskar innréttingar og alla þessa sérsmíði varð furðulítið meiri en ef við hefðum tekið einingadót frá IKEA eða sambærilegum aðilum og gæðin allt önnur. Fyrir vikið töluðum við aftur við Axis þegar við útbjuggum barnaherbergi á síðasta ári og þurftum að fá nýjan fataskáp.
Og nú í vikunni má segja að lokahöndin hafi verið lögð á verkið, þegar komið var fyrir bókahillum uppi við rjáfur á ganginum. Axis sá um smíðina og Eiríkur smiður um uppsetninguna. Ég get varla beðið eftir að fara að raða bókum þarna upp. Sé loksins fram á að geta tekið síðustu bókakassana upp úr geymslunni…
Maður á að hrósa fyrirtækjum sem veita góða þjónustu og bjóða upp á góðar vörur. Og ekki spillir fyrir ef um er að ræða gamalgróin íslensk fyrirtæki með farsæla sögu.
Hvernig er það annars – telst við vinna við uppsetningu á innréttingum til viðhalds? Þ.e. fær maður vaskinn endurgreiddan?