Einhverra hluta vegna finnst mér keppnistímabilið í Englandi byrja fyrr og fyrr með hverju árinu sem líður. Ein af skýringunum er líklega netið. íður en fótboltatengdu heimasíðunum fjölgaði svona gríðarlega, þá var eins og mótið byrjaði þegjandi og hljóðalaust – og enginn væri almennilega kominn í gírinn. Núna getur maður á hverjum degi lesið fjölda greina þar sem verið er að byggja upp stemninguna.
Við Luton-menn höfum svo sem engar ástæður til bjartsýni að þessu sinni. Sumarið fór allt í innahússerjur og bráðabirgðafjárhaldsmaður liðsins er í massívum niðurskurði. Þannig mun varaliðið ekki taka þátt í deildarkeppni varaliða og unglingaliðið er sett á ís. Loks var ritstjóra hinnar opinberu heimasíðu sagt upp.
Mike Newell, knattspyrnustjóri, hefur ekki af miklum ferli að státa og stuðningsmennirnir eru honum mjög andsnúnir. Leikmannahópurinn þarf styrkingar við, en það getur ekki gengið í gegn fyrr en nýir aðilar hafa keypt félagið. Fréttir af þeim málum eru mjög á reiki.
En þrátt fyrir þetta allt saman er hin dæmigerða haustbjartsýni í sumum stuðningsmönnum. Sumir vísa í að allt hafi verið í steik hjá Leicester í fyrra fyrir tímabilið en þeir komið öllum á óvart og farið upp um deild – að þetta gæti Luton leikið eftir. Ekki deili ég þeirri bjartsýni.
Eftir stendur hins vegar að fyrsti leikur verður laugardaginn 9. ágúst – heima gegn Rushden & Diamonds. R&D er það félag í ensku deildarkeppninni sem kemur frá fámennasta bænum, en það er samsteypulið tveggja bæjarfélaga sem til samans eru álíka fjölmenn og Keflavík. Liðið er hins vegar í eigu milljónamæringsins sem framleiðir Dr. Martens-skónna og getur því keypt góða leikmenn þótt áhorfendur á leikjum séu fáir.
Við Bryndís höfðum verið að gæla við að skella okkur út að sjá Luton og Grimsby spila, en þar sem fyrri leikurinn er 23. ágúst er ljóst að ekki komumst við á hann. Sá seinni er 24. jan. Sjáum hvað setur.
Á ég að kaupa mér nýja Luton-treyju? Sú gamla er orðin slitin og auglýsingin á henni veldur því hvort sem er að allir halda að ég sé í bandaríska landsliðsbúningnum. (Hver kallar fyrirtækið sitt „Universal Salvage Association“ og skammstafar það USA???)