Vinnuvika

Jæja, nú er ljóst að það verður tekið á því­ í­ vinnunni þessa vikuna. Fyrir dyrum er uppsetning á írafossvirkjunartengdri sýningu sem helst þyrfti að vera tilbúin um miðja næstu viku. Það verða allmörg handtök hjá okkur Sverri vegna þessa.

Það einfaldar nokkuð skipulagninguna að fyrirhugaðri skreppferð á Suðurlandið hefur verið skotið á frest. Steinunn fékk hringingu áðan frá Sankti Jó. Henni bauðst að leggjast þar inn á morgun og vera í­ þrjá daga, sem er fí­nt þar sem smásteraskammtur ætti að hressa hana við. – Ferðalagið bí­ður þá bara betri tí­ma.

* * *

Er hálft í­ hvoru að spá í­ að skella mér í­ bí­ó í­ kvöld. Á hvaða mynd ætti maður að fara? (Endilega komið með uppástungur hér fyrir neðan.)

* * *

Bráðum verður látið sverfa til stáls í­ viðskiptum mí­num við tiltekna aðila. Mikið óskaplega er ömurlegt að þurfa að standa í­ leiðindum og stappi gagnvart öðru fólki. Af hverju geta ekki bara allir verið vinir, staðið við orð sí­n og látið af króní­skri lygaáráttu?