Ógn og skelfing! Menningarnótt á morgun og alls óvíst að ég komist á neinar uppákomur! Þarf aðeins að skjótast í vinnuna um morguninn, á fótboltaleik síðdegis og stjana við sjúklinginn um kvöldið.
Þetta þýðir að ég kemst líklega ekki á vísindavefs-uppákomuna í Top Shop-húsinu þar sem írmann mun sitja fyrir svörum og leysa úr spurningum almúgans.
Ég var meira að segja búinn að semja spurningu, þannig að kannski getur einhver lesandi þessarar síðu borið hana upp fyrir mína hönd. Hún yrði eitthvað á þessa leið:
írmann – nú spyr ég þig sem bókmenntafræðing og snilling. Fyrir lýðveldisstofnunina 1944, varpaði skáldkonan Hulda fram einfaldri spurningu sem enn hefur ekki fengist svarað með fullnægjandi hætti. Því spyr ég – „hver á sér fegra föðurland?“ Ef um fleiri en einn aðila er að ræða, gætirðu þá talið þá upp í stafrófsröð og helst líka reynt að raða þeim niður eftir því hver á sér fegursta föðurlandið og hver það ljótasta?
Ég er viss um að þetta yrði mjög fróðlegt.