Óskaplega getur verið leiðinlegt að þurfa að snattast í sumum málum.
Síðustu daga hef ég þurft að vesenast vegna tveggja íbúða. Annars vegar íbúðarinnar minnar á Hverfisgötunni (sem ég leigi út) og hins vegar vegna Mánagötunnar. Hvað síðari íbúðina varðar er komið upp rottuvandamál í húsinu, sem þýðir að eitthvað þarf að gera varðandi klóakið. Tel allar líkur á að klóakið undir húsinu sé gjörónýtt, sem gæti þýtt að skipta þurfi um allar lagnir, brjóta upp gólf og þar fram eftir götunum.
Ljótt, ljótt sagði fuglinn!