Besti og frægasti bloggarinn gæti endurholdgast sem klóakrotta á morgun og plumað sig ágætlega. Svo mikið veit ég nú um klóaklagnir, safnbrunna og niðurfallsstúta, eftir óteljandi símtöl við iðnaðarmenn, aðra íbúa Mánagötunnar og tæknifræðinginn Tobba frænda. Síðdegis ætla ég svo að reyna að stefna öllum þessum hópi saman þar sem endanleg ákvörðun verður tekin í málinu. Hætt hefur verið við að brjóta upp öll gólf í kjallaranum, en garðurinn verður grafinn upp. Blessuð sé minning rabbabarans.
* * *
Leigjandinn minn fyrrverandi hefur loksins rutt íbúðina (að ísskápnum einum frátöldum). Hugmyndir hans um hvað teljist snyrtilegur frágangur eru allsérstæðar. Fyrir vikið lendum við pabbi í þrifum á þriðjudag – sem stuðlar.
Um leið og búið verður að sótthreinsa klósettið og strjúka yfir gólfin mun besti bloggarinn finna fasteignasölu. Enn er tekið við uppástungum um góða og heiðvirða menn í þeim bransa. – Mikið verður það skemmtilegt að byrja að sýna húsnæðið lon og don, fólki sem eflaust er bara að skoða hús til að drepa tímann og hnýsast.
* * *
Ég reyni að blogga ekki um pólitík, enda hef ég aðgang að öðrum og betri vettvangi til slíkra hluta. Get samt ekki stillt mig um að pirrast yfir Tony Blair.
Hann fór í viðtal um helgina, meðal annars til að svara kröfum um að hann segði af sér og hleypti öðrum að. En Blair ætlar ekki að hætta. Og hvers vegna? Vegna þess að hann telji svo mörgum verkum ólokið? Vegna þess að hann vilji ekki hætta fyrr en einhver tiltekin mál séu í höfn? – Nei, hann segist ætla að sitja lengur en Thatcher.
Hvers vegna fór maðurinn ekki í íþróttir frekar en pólitík?
* * *
„Hver ert þú, strákur litli?“ spurði Karlinn í tunglinu.
„Ég er Stúfur, sem aldrei borðar graut, af því að hann er versti matur í heimi“, sagði Stúfur.