Besti bloggarinn kemur ágætlega undan áramótum, enda mikið sofið síðustu daga. Ekkert lát er þó á veisluhöldum. Á kvöld, föstudag, koma Óli Jó, Palli og Hildur í kvöldmat. Svín og rauðvín. Ætti ekki að klikka.
Á fyrramálið, nánar tiltekið kl. 11, er svo von á miðnefnd SHA í bröns á Mánagötuna þar sem ætlunin er að hrista saman hópinn fyrir starf vetrarins. Síld, ofnréttur, brauðmeti o.þ.h. – Laugardagsbröns er miklu skynsamlegri leið til að ná saman svona mannskap en að reyna að draga alla saman á fyllerí.
Að brönsi loknum verður stefnan tekin í afmæli hjá Vigdísi mágkonu. Þar mun ég stelast í textavarpið til að fylgjast með framvindu mála í bikarleik Luton gegn Bradford – það er, ef hann verður ekki blásinn af vegna slæmra vallarskilyrða. Ekki er ljóst ennþá hvort Bryndís mætir í boðið, en hún er á leið aftur til ítalíu og því fyllsta ástæða til að hitta hana um helgina.
Um kvöldið er svo jólaboð Guðrúnar og Elvars. Við Steinunn erum komin þar á gestalistann í fyrsta sinn. Það er eftirsóknarvert í meira lagi enda þau hjónin snillingar og sælkerar.
* * *
Um helgina þarf ég að semja slurk af spurningum fyrir GB. Mér skilst að annar hver keppandi lúslesi þessa síðu í þeirri von að ég blaðri einhverju um spurningar vetrarins. Til að gleðja þetta lið ætla ég að blogga oft og mikið um keppnina á næstunni.
Til dæmis get ég ljóstrað því upp að 28 skólar taka þátt í ár, það er metþátttaka. Okkur telst svo til að 29 skólar hafi haft keppnisrétt, en Laugar eru ekki með að þessu sinni.
Dregið verður í fyrstu umferðina í Kastjósi mánudaginn 5. jan. Ekki hefur verið ákveðið hver eða hverjir mæti í dráttinn. Þessir 28 skólar mætast í 14 viðureignum í fyrstu umferð. Sigurskólarnir fara í aðra umferð, en úr þeirri umferð komast sjö sigurlið og eitt stigahátt taplið í sjónvarp.
Fyrstu útvarpskeppnirnar verða fimmtudaginn 15. janúar n.k.
Jamm.