Einu sinni áttum við Framarar stuðningsmannalag sem nefndist „Stöngin inn!“ – það var rangnefni á leiknum í dag. „Stöngin út!“ hefði verið nær lagi. Ekki hef ég hugmynd um hversu oft Framararnir negldu í stöngina eða slánna á KA-markinu.
Ekki þar fyrir að úrslitin voru sanngjörn. Akureyringarnir voru einfaldlega betri í dag. Fúlt.
* * *
DV birtir í dag frétt um spurningakeppnina á fimmtudaginn og annar ritstjórinn skrifar grein mér til stuðnings. Fyndið hvað hægt er að æsa sig út af svona keppni.
Sjálfur er ég frekar rólegur yfir þessu öllu. Að dæma í spurningakeppni er nákvæmlega eins og að dæma í handbolta eða fótbolta. Stuðningsmenn þeirra sem tapa kalla dómarann iðulega fífl eða svindlara og þjálfarar og liðsmenn missa stundum út úr sér hluti sem þeir hefðu líklega sleppt að betur hugsuðu máli. (Auk þess sem blaðamenn eiga það til að velja út safaríkustu ummælin.)
Þar sem ég hef verið íþróttaáhugamaður í öll þessi ár og margoft sent dómurum eitruð hugskeyti eða sagt eitthvað miður fallegt, væri það hræsni ef ég færi að pirra mig yfir einhverjum spekúlasjónum og pillum í minn garð á spjallsíðum og víðar.
Það sem eftir stendur er þetta:
Dómarar geta gert mistök. Sem betur fer gerðist það þó ekki í þessum þætti. Reyndar mátti litlu muna, vegna þess að hljóðið í Smáralindinni er ömurlegt hjá dómara og stigaverði, þannig að við heyrum með höppum og glöppum svör sem ekki eru skýrt borin fram. Það kostaði Hraðbraut stig í fyrsta þættinum og hefði getað kostað MH stig núna, ef fólkið í tækjabíl Sjónvarpsins hefði ekki náð að koma til mín leiðréttingu.
Um önnur atriði í þættinum þarf sem betur fer ekki að þrátta og allra síst lokaspurninguna. Þar var fiskað eftir svarinu „Nýja Sjáland“ og að sjálfsögðu hefði verið gefið rétt fyrir „Nýja Sjáland & ístralía“. Fæðingarstaðurinn varð hins vegar að koma fram, annað hefði verið út í hött. Viðurkennd uppflettirit eins og Britannica tiltaka öll að Russell Crowe sé fæddur á Nýja Sjálandi og eftir því var auðvitað verið að fiska.
Því miður fyrir lið MH vissu þau það einfaldlega ekki og þess vegna töpuðu þau. Enginn sem tengdur er MH-liðinu hefur reynt að halda því fram að lið þeirra hafi vitað um fæðingarstað leikarans, en ákveðið að nefna samt sem áður annað upprunaland – enda hefðu þau þá einfaldlega getað svarað þannig að hann væri fæddur á Nýja Sjálandi en hefði búið stóran hluta ævi sinnar í ístralíu og fengið rétt fyrir.
Þannig er það nú bara.