Ég verð ekki vöðlungsverpill í kvöld…
Vöðlungsverpill er eitt þeirra skemmtilegu orða sem finna má í orðabók Kylfunnar, krikketklúbbs Reykjavíkur. Kylfan ætlar einmitt að koma saman til æfinga í kvöld eins og fram kemur hjá Óla Njáli og sem Þór hefur boðað komu sína á. Sjálfur var ég hins vegar að uppgötva að ég verð fjarri góðu gamni, því frá og með deginum í dag flytjast hinir hefðbundnu fótboltatímar mínir í íþróttahúsi Seltjarnarness frá sunnudagseftirmiðdögum yfir á miðvikudagskvöld og verður svo til haustsins.
Þar spila ég meðal annars ásamt Svenna Guðmars, en aðrir í fótboltahópnum eru ekki byrjaðir að blogga og því tilgangslaust að linka á þá. Það er helst að maður gæti bundið vonir við Kjartan sem bloggara.Þá yrði Sibbi örugglega skemmtilegur í blogginu líka. – En sem sagt, ekkert krikket hjá mér í kvöld.
* * *
Á gær fór ég ásamt félaga Stefáni Jónssyni í góðan göngutúr um Vesturbæinn og miðbæinn. Að sjálfsögðu enduðum við á Næsta bar. Þar mátti sjá ýmis kunnugleg andlit. T.d. Eirík Jónsson blaðamann, Hjálmar Blöndal (sem var búinn að boða framboð Bifrastarlistans í Borgarbyggð en guggnaði) og glaðbeitta Framsóknarmanninn og uppgjafarbóndann Guðjón Ragnar Jónasson. – Þegar leið á kvöldið kom svo Óli Guðmunds, kennari og starfsmaður minn hér á safninu. Hann hafði þá lent í þeirri óskemmtilegu reynslu að hjólinu hans var stolið af ótrúlega bíræfnum þjófi. Þjófurinn labbaði einfaldlega inn í garð til hans í Þingholtunum og greip ólæst hjól fyrir allra augum og hjólaði á brott þrátt fyrir að reynt væri að hrópa á eftir honum. – Þetta er raunar strangt til tekið ekki þjófnaður heldur gripdeild, eins og löglærðir myndu benda á.
Jamm.