Fyrir áhugafólk um framvindu mála í baðherbergisframkvæmdunum stóru er rétt að upplýsa að búið er að festa kaup á einfaldri baðinnréttingu og klósetti frá Baðheimum.
Stefnir í að Byko nái ekki að selja okkur nema eitt baðkar eftir allt saman.
Baðheimar og ílfaborg reyndust síst dýrari kostir en Byko og starfsfólkið vissi meira í sinn haus.
…og ekki spillir fyrir að geta verslað í heimabyggð!
Jamm.