Mánagötuhjónin stóðu frammi fyrir því í gær að velja milli þess að fara í göngutúr eða leigja mynd til að góna á. Myndin varð fyrir valinu, enda hefði hitt kallað á labb.
American Splendour reyndist frábærlega skemmtileg mynd. Alveg fór þessi ræma fram hjá mér í bíó – ef hún var þá sýnd þar. Kannski maður reyni að fræðast meira um þennan náunga. Einhvern veginn hef ég þó aldrei haft mig í það að hella mér út í þennan ameríska teiknimyndasögukúltúr.
* * *
Bærileg úrslit í fótboltanum í gær. KA og Keflavík, sem eru með okkur Frömurum í fallbaráttunni unnu reyndar bæði – en það eykur álagið á þessi lið að halda áfram í bikarnum. Þá fékk Dean Martin úr KA rautt spjald og Björgólfur Takefusa sömuleiðis. Ef Björgólfur fékk beint rautt lendir hann væntanlega í tveggja leikja banni og missir af FRAM-leiknum.
Af fótboltamálum er það annars að frétta að ég er gjörsamlega að fara á taugum fyrir mánudagskvöldinu. FRAMfærslan er í smíðum. Hún verður á svipuðum nótum og verið hefur. Á nótt dreymdi mig hins vegar að FRAM og KA væru að leika á Laugardalsvelli og KA-menn mættu með sína eigin leikskrá – átta síður prentaða í lit á glanspappír. – Er ég að verða ofsóknarbrjálaður?