Luton tekur á móti Oldham í fyrstu umferð ensku 1.deildarinnar (sem er í raun 3.deil) í dag. Hearts er á útivelli gegn Dundee. Skyndilega hellist yfir mig fótboltafár.
Þegar Mánagatan verður búin að tölvuvæðast, þá gerist ég kannski áskrifandi að stuðningsmannasvæði Luton á netinu, þar sem hægt verður að skoða upptökur af öllum mörkum og svipmyndir frá leikjum…
Oldham var ásamt Luton og QPR, eina enska liðið til að spila á gervigrasi hér í gamla daga. Þá töldu menn að gervigrasið væri framtíðin og að 2004 yrðu allir klúbbar í Norður-Evrópu á gervigrasi. – Minningar, minningar…
* * *
Sjoppukeppnin stendur enn yfir, þótt þátttakan sé nokkuð að dala. Kenni úthaldsleysi landsmanna um.
Staðan:
Hamraborg, ísafirði 4 : Draumurinn 6
Skaraskúr 5 : Hallinn 8
Fjallakaffi 7 : Kaupfélag Strandamanna, Drangsnesi 3
Jamm.