…er í boði Skonrokks.
Valtýr Björn segir ljóskubrandara sem hann fékk sendan frá vini sínum.
Brandarinn gengur út á ljósku sem fer í „Viltu vinna milljón“. Hún ýmist sleppir spurningum, spyr salinn, lætur taka burt svör eða hringir í vin. Spurningarnar eru meðal annars:
Hversu lengi stóð 100 ára stríðið? (Einn valkosturinn er – 100 ár)
Á hvaða landi voru Panama-hattarnir fundnir upp? (Einn valkosturinn er – Panama)
Hvað hét Georg VI að skírnarnafni? (Einn valkosturinn er – Georg)
Við hvaða dýr eru Kanaríeyjar kenndar? (Einn valkosturinn er – Kanarífuglar)
Valtýr endursegir brandarann í löngu máli og er að rifna af hlátri á meðan – híhí voða fyndið að ljóskan giski ekki á augljósu svörin… Hlustendur bíða eftir að pönslænið komi, þar sem Valtýri útskýri að ljóskan hafi ekki verið svo vitlaus – að þvert á það sem margir haldi séu Kanaríeyjar kenndar við hunda ekki kanarífugla; að 100 ára stríðið hafi í raun verið meira en 100 ár; að Panamahattarnir séu frá Kólumbíu o.s.frv.
…en nei! Valtýr lýkur brandaranum á að flissa yfir vitlausu ljóskunni sem ekkert viti. Tíhí, tíhí – 100 ára stríðið – hmm…. hvað skyldi það nú hafa staðið lengi? Tíhí… – Engin afkynning, ekkert!
Valtýr Björn klikkar ekki!