Síðar í vikunni sendi ég inn í Laugardal líkan af gömlu þvottalaugunum, sem geymt hefur verið hér á safninu í nokkur ár. Eðli málsins samkvæmt á líkan af þessu tagi heima í grennd við gömlu laugarnar, en öllu síður á safni sem einkum sinnir virkjun fallvatna.
Líkön eru gallagripir. Þau eru frábær leið til að miðla sögunni og gera fólki í hugarlund hvernig húsum og tækjum hafi verið fyrir komið á tilteknum stöðum og tíma. Safnamaðurinn sér því líkanið eins og hvert annað sýningartæki – mynd í ljósakassa eða upplýsingar á tölvuskjá.
Líkanasmiðurinn hefur hins vegar aðra sýn á málið. Á hans huga er líkanið sjálfstætt sköpunarverk – listaverk ef út í það er farið. Það er reyndar mjög skiljanlegt viðhorf. Af hverju ætti listamaður sem reynir að fanga fortíðina í líkan að meta verk sið öðruvísi en listamaður sem gerir það á striga.
Þessi ólíka afstaða veldur ekki vandræðum fyrr en safnamaðurinn kemst að þeirri niðurstöðu að líkanið þjóni ekki lengur tilgangi sínum, að það sé úrelt og eigi því að fara í geymslu. Þá kemur til árekstra.
Ef hægt verður að koma þvottalaugalíkaninu fyrir á veglegan hátt í sal Laugardalslaugar ættu allir að kætast. Ég, líkanasmiðurinn, laugarstarfsmenn og síðast en ekki síst ótal erlendir túristar sem eru vitlausir í að vita sem mest um jarðhitann.
Sjálfur hef ég einu sinni komið að því að gera líkan. Það var fyrir Reykjavíkursýninguna 1986 að við grísirnir í Melaskólanum vorum sett í að búa til líkan af Reykjavík 100 árum fyrr, ef ég man rétt. Flestir fengu það verkefni að búa til hús, sem voru þannig unnin að teiknikennarinn sá okkur fyrir litlum pappakofum sem hver um sig átti að þekja með spýtum, mosa og grjóti.
Sjálfur fékk ég við annan mann það verkefni að útbúa vatnspóstinn í Aðalstræti. Mig minnir að sökkullinn hafi verið eldspýtustokkur, sjálfur bolurinn var tvinnakefli og stúturinn og sveifin úr kókómjólkurröri. Þetta var svo lakkað brúnt. Merkilegt nokk varð vatnspósturinn nokkuð eðlilega útlítandi, en því miður ekki í trúverðugum stærðarhlutföllum þar sem hann gnæfði yfir nálæg hús.
Hvað skyldi hafa orðið af þessu líkani? Ætli einhver vesalings safnamaðurinn þurfi að geyma það í kjallaranum sínum og viti ekkert hvað gera skuli við gripinn?