Vek athygli á grein minni á Múrnum frá mánudeginum um Kókoseyjur í Indlandshafi. Illu heilli gerði samning greinarinnar það að verkum að ég fékk hallærispopplög með Right Said Fred á heilann. Til að yfirvinna það óféti, hef ég verið að rúlla í gegn Bona Drag með Morrissey. íhrifin létu ekki á sér standa og nú söngla ég í sífellu hið stórgóða lag „Everyday is like Sunday!“
Hide on the promenade
Etch a postcard :
„How I Dearly Wish I Was Not Here“
In the seaside town
…that they forgot to bomb
Come, Come, Come – nuclear bomb
Everyday is like Sunday
Everyday is silent and grey
* * *
Leit á FRAMstelpurnar vinna Akureyringa í handboltanum í gær. Það var fín stemning og miklu fleiri áhorfendur en ég átti von á. Held samt að ég hafi nánast verið eini maðurinn sem ekki var skyldmenni eða kærasti einhvers í liðinu eða nýkominn eða á leiðinni á handboltaæfingu. Gleðilegt að sjá kvennaliðið rétta úr kútnum eftir nokkur döpur ár.
* * *
Spádómar mínir frá því í gær varðandi leiki dagsins í Asíukeppninni eru þegar farnir að hrynja. Þegar skammt er til leiksloka hjá Laos og Jórdaníu í 1 riðli eru heimamenn með yfirhöndina. Það þýðir að Jórdanía er nánast örugglega búið að klúðra þessu og íran fer í úrslitakeppni álfunnar.
Meira síðar…