Stund vonbrigða

Nú er handboltinn að byrja. Sælt er sameiginlegt skipbrot.

Að þessu sinni verðum við væntanlega slegin í­ gólfið strax í­ fyrsta leik, í­ stað þess að leyfa okkur að vinna Azoreyjar og Bangladesh í­ fyrstu leikjunum áður en napur veruleikinn blasir við.

Það er samt alltaf gaman þegar stórmótin í­ handboltanum standa yfir. Þjóðin fyllist ofurbjartsýni og þegar lí­ður á stappa menn í­ sig stálinu – að það sé ekki allt búið enn: við þurfum BARA að vinna Sví­a eða Rússa…

Ég held með Róbert á lí­nunni. Hann lék með FRAM.