Borið blak af Valsmönnum

Ekki er mér nú vel við að koma Valsmönnum til varnar á opinberum vettvangi og allt eins von á að fá á baukinn hjá Frömurum fyrir. Verð samt að leiðrétta Jakob Bjarnar, sem ég veit að les þessa sí­ðu.

Jakob ví­kur í­ fjölmiðlapistli í­ DV á laugardaginn að því­ að Valsmönnum hafi tvö ár í­ röð verið bjargað frá falli í­ fótboltanum með því­ að fjölgað var í­ deildinni. Þetta er ágæt saga, sem Jakob hefur margoft sagt í­ hinum ýmsustu útvarpsþáttum. Hið rétta er, að þetta var í­ körfuboltanum ekki fótboltanum. Það er hér með leiðrétt.

Hitt er annað mál að lí­klega veit Jakob betur. Hann ástundar lí­klega þá gömlu strategí­u að „láta helví­tin neita því­“.

# # # # # # # # # # # # #

Snillingarnir í­ Bí­lhúsinu ætla að smyrja bí­linn minn í­ fyrramálið og skoða hvort rafgeymirinn er eitthvað að slappast. Festist á ljósum í­ morgun, þar sem bí­llinn komst ekki í­ gang fyrr en eftir dúk og disk.

Vonandi brestur á með úrhellisrigningu seinnipartinn. Það er löngu orðið tí­mabært að hreinsa klakann af götunum. Ég hef tröllatrú á að komið sér vor!

# # # # # # # # # # # # #

Á gær undirbjó ég ví­sindasögutí­mann og las því­ ýmsar greinar um stjörnufræðirannsóknir. Þar datt ég niður á skrif ýmissa nöttara sem héldu að Hale-Bopp halastjarnan sem kom um 1997 í­ námunda við jörðina væri geimskip og boðaði heimsendi. Herregud hvað það er mikið af geggjuðu fólki til.