Sjónvarpið er greinilega með fyrirbura-þema þessa vikuna. Á gær var sjónvarpsmynd um dauðastríð fyrirbura og sálarangist foreldranna, í kvöld er heimildarþáttur frá BBC.
Á gær ætlaði ég að horfa á Bleika pardusinn á Skjá einum. Kom mér vel fyrir ásamt Laphroigh-flösku, sem ætlunin var að grynnka í. Eftir því sem senurnar í myndinni urðu langdregnari og ófyndnari, datt ég meira og meira inn í fyrirbura-myndina.
Líklega hafði viskýið sitt að segja, en eftir því sem leið á gerðist ég stöðugt melankólískari og var að lokum kominn með heljarmikinn kökk í hálsinn. Ekki legg ég í þessa sjónvarpsmynd í kvöld – þótt dagskrárkynning láti að því liggja að hún endi vel.
# # # # # # # # # # # # #
Bryndís kemur í kvöldmat. Saltað hrossakjöt verður á boðstólum. Það er ekki amalegt og ódýrari mat er erfitt að finna.
# # # # # # # # # # # # #
Upprifjun Steina á Múrnum á pólitískum ferli ísgeirs Hannes Eiríkssonar er kostuleg!
# # # # # # # # # # # # #
Um helgina vann Hearts Celtic-menn á útivelli í skosku deildinni. Blöðin segja að sigurinn hafi verið verðskuldaður.
Ætli ég láti þá ekki verða af því að horfa á Hearts : Celtic kl. 11 á sunnudagsmorguninn kemur, í undanúrslitum bikarkeppninnar?
Ef Páll Kristjánsson frændi minn les þessa færslu, þá væri gaman að horfa á leikinn með honum á einhverri knæpunni – Palli er nefnilega ákafasti Hearts-stuðningsmaður sem ég veit um.
– Kannski ég ætti að fjalla um hann í Palladómum?