Bloggarinn Lárus birtir þessa mögnuðu mynd á síðunni sinni, þar sem sjá má tölvuteikningu af Hringbrautinni eftir breytingar.
Lárus býsnast yfir því rýra byggingamagni sem gert er ráð fyrir á Valssvæðinu. Sjálfum finnst mér merkilegra að sjá hversu miklum húsamassa er gert ráð fyrir á Landspítalasvæðinu. Eitthvað mun nú þurfa af bílastæðakjöllurum ef þetta á að ganga eftir.
Annars er það svæðið í forgrunninum sem ég staðnæmdist helst við. Miklatún er óskaplega stórt svæði – en nýtist ekki neitt. Sárasjaldan sér maður nokkurn mann t.d. spila fótbolta á þessum malarvelli. Mætti ekki koma þarna upp sparkvöllum með gervigrasi?
# # # # # # # # # # # # #
Fór á Hagstofuna áðan. Ólínunafnið er hér með lögformlega skráð.
Formsatriði fullnægt.