Smá mont…
Jibbý, gaman gaman! Við Sverrir (og þá er ég að tala um Sverri Guðmundsson, ekki Sverri Jakobsson) erum að gera svo góða hluti hér á safninu! Eftir að við fundum undraefni í Pennanum Hallarmúla til að líma ljómyndapappír á, þá þrykkjum við út sögutextum og gömlum ljósmyndum og hengjum upp á vegg. Þetta tekur fáránlega langan tíma en útkoman er að verða býsna flott.
Enn sem komið er, þá erum við aðallega búnir að vera að vinna í sögu rafvæðingar og rafvæðingaráætlana á Íslandi fyrir byggingu Elliðaárstöðvar árið 1921. Undir það fellur líka saga Gasstöðvarinnar, þannig að BA-ritgerðin mín er loksins farin að gagnast eitthvað. Þegar Ólafur (og þá er ég að tala um Ólaf Guðmundsson, ekki Óla Jó) kemur aftur úr fríinu getum við aftur dembt okkur í básinn með jarðlínudeildinni og þá einkum stóra Quarashi-plakatið sem fer upp á einn vegginn. Við tölum um Quarashi-myndina vegna þess að hún sýnir heljarstórt háspennuvirki í grafískri upplausn sem líkist mjög myndinni framan á Quarashi-disknum.
Sverrir er raunar búinn að pæla töluvert í því geisladiskahulstri og uppgötvaði að sú mynd er ekki af gamla háspennuvirkinu í Elliðaárdal heldur er hún tekin af tengivirkinu við Korpu. Ég veit ekki hvor er meiri nörd – hann fyrir að komast að þessu eða ég fyrir að finnast þetta svona merkilegt…