Snörl…
Jæja, haustið er komið. Það sannast á nefinu á mér sem er orðið stíflað. – Það er því rétt að vara lesendur þessarar síðu strax við því að ég mun á næstunni barma mér mjög. Mér er flest betur gefið en að bera mig kalmannlega í veikindum.
* * *
Fram tapaði, Hearts gerði jafntefli, allt í steik hjá Luton. Fótboltinn verður martraðarkenndari með hverjum degi sem líður…
* * *
Stefni að því að taka það rólega í kvöld og halda áfram með Rebus-reifarann sem ég fékk frá mömmu – Resurrection Men. Þetta er þrettánda Rebus-bókin eftir Ian Rankin og ég hef lesið þær allar. Við tækifæri ætla ég svo að panta mér þá nýjustu og væntanlega líka nýjustu Irving Welsh-bókina.
Jamm.