Heimtur úr helju…
Jæja, þá er besti og frægasti bloggarinn farinn að blogga aftur eftir hálfsmánaðarfrí. Að því tilefni verður bloggið óvenjulangt og kemur víða við.
* * *
Þögnin: Af hverju blogghvíld? Jú, ástæðan er einföld. Ég vildi gefa öðrum og minni spámönnum í bloggsamfélaginu tækifæri til að sýna sig og sanna án þess að þurfa að vera undir ægivaldi mínu. Þetta er ekki ósvipað því þegar Pétri Ormslev var skipt útaf hjá Frömurunum á sínum tíma og ólíklegustu leikmenn fóru þá að sýna sínar bestu hliðar. Er ég Pétur Ormslev bloggsins? – Tvímælalaust!
* * *
Viðtalið: Eflaust hafa margir aðdáendur þessarar síðu orðið fyrir miklum vonbrigðum eftir að hafa kveikt á þætti Gísla Marteins og vænst þess að sjá viðtal við mig eins og boðað hafði verið. Ekkert varð úr því að viðtalinu yrði sjónvarpað. ístæðan er sú að Gísli Marteinn varð alveg brjálaður yfir því að ég skyldi upplýsa á þessari síðu að þátturinn hans væri ekki í beinni útsendingu. Hann varð svo reiður að hann tók ekki í mál að sýna þáttinn. Á staðinn reddaði hann Davíð Oddssyni á síðustu stundu í nýjan þátt sem var tekinn upp í hvelli. Mér er svo sem alveg sama. Sjónvarpið þarfnast mín meira ég ég þarfnast þess…
* * *
Barnið: Eins og fram kemur hjá Steinunni hefur litli gríslingurinn þeirra Jóhönnu og Valdimars fengið nafn. Hann heitir nú Helgi Gnýr. Það er vel valið nafn sem gefur ýmsa möguleika. Ef drengurinn verður t.d. bankastjóri, þá getur hann kallað við Helga G. Valdimarsson – sem er mjög bankastjóralegt. Ef hann verður hins vegar ljóðskáld eða myndlistarmaður, þá getur hann nefnt sig H. Gný Valdimarsson – sem er vel við hæfi. Snjallt!
* * *
Jólin: Fín, eins og við var að búast. Mikið étið. Fékk í raun bara eina bók, aldamótabókina eftir Þórunni Valdimarsdóttur. Það var rýrari uppskera en oft áður. Kom þó ekki að sök þar sem ég sökkti mér oní púsluspil í staðinn.
* * *
Fiskurinn: Gaf Steinunni gullfisk í jólagjöf ásamt glerkrukku. Eftir miklar bollaleggingar hefur hann fengið nafnið „Fiskur“. Aðrar hugmyndir sem komust á blað voru: „Snati“, „Metúsalem“ og „Þorskur“.
* * *
Rafmagnsleysið: Það fór víst rafmagnið af hluta Reykjavíkur um 6-leytið á aðfangadag. Ekki hefur það mælst vel fyrir hjá viðskiptavinum Orkuveitunnar. Hvernig má hindra að þetta gerist í framtíðinni? Ég er með lausn við því! – Á hvert sinn sem rafmagnið fer af vegna of mikiols álags í kringum jólin, ætti Orkuveitan að birta í fjölmiðlum lista með nöfnum og heimilisföngum 10 mestu orkunotenda í grenndinni. Þá myndu vitleysingarnir sem þekja hús sín með jólaseríum hætta að glotta, þegar múgur birtist á tröppunum hjá þeim með tjöru og fiður.
* * *
Boltinn: Hóhóhó… Luton er að gera svo góða hluti í boltanum núna. Eftir glæsisigur á Cardiff erum við komnir í 6. sætið, með betri markatölu en QPR. Erum við að komast í umspil eftir afleita byrjun? Er Joe Kinnear besti þjálfarinn? Mun hinn nýi Kenilworth Road nokkru sinni rísa?
* * *
Vinnan: Mætti þunnur og vitlaus í vinnuna. Hvers vegna blása menn ekki bara af þessa tvo vinnudaga milli jóla og nýárs? Það er ekki eins og fólk sé að fara að koma nokkrum sköpuðum hlut í verk!
* * *
Gneistinn: Mætti gjarnan svara því hvað fjöltengi úr venjulegum klóm í ítalskar innstungur kosti. Tengdó nennir ekki að skipta um klær, en gengur um með þær hugmyndir að millistykki og/eða fjöltengi í þessa átt séu ófáanleg eða fokdýr.
Jamm