Kaldhæðni

Get ekki hætt að skemmta mér yfir vandræðum þess góða pilts Hrafnkells Brynjarssonar, eða Mella eins og hann er betur þekktur.

Hrafnkell er á leiðinni til meginlandsins og hyggst setjast að í­ anarkistakommúnu. Hins vegar hefur það mál ekki gengið í­ gegn vegna þess að umsóknin hans er enn að þvælast í­ kerfinu þarna úti. Hann sótti seint og illa um og allt er í­ uppnámi.

Hversu fyndið er það að lenda í­ skrifræðis-anarkistum? Maður hefur heyrt ýmislegt um þýsku reglusemina og nákvæmnina, en bjúkratí­sk kommúna er bara alltof fyndið…