Eðlisfræði fyrir kynvísa

Klúður! Fyrir lifandis löngu var ákveðið að auglýsa opið hús í­ Rafheimum laugardaginn 6. ágúst, þar sem foreldrar gætu komið og kennt grí­slingunum sí­num allt um rafmagnið. Þetta hljómaði eins og ágætis hugmynd á sí­num tí­ma, enda var enginn búinn að lí­ta á dagatalið.

Á laugardaginn kemur verður sem sagt Gay Pride í­ miðborginni og milljón, skrilljón manns. Á Elliðaárdalnum verður hins vegar væntanlega ekki kjaftur. Bömmer!

Kannski ætti safnið að koma með krók á móti bragði og leggja sérstaka áherslu á að höfða til hómófóbí­skra? Engir hommar í­ Rafheimum! Vertu ekki hýr – komdu til okkar! Veit ekki hvort slí­kar auglýsingar samrýmist alveg stefnu Orkuveitunnar um vera góður þjóðfélagsþegn og berjast gegn fordómum…