Hvers vegna…

…sendir einhver kona sem ég þekki ekki neitt mér heljarstór Word-skjöl með grunnupplýsingum um hvernig semja skuli heimildaritgerðir? …er stapp við iðnaðarmenn svona ofboðslega leiðinlegt? …er skí­takuldi á morgnanna þegar ég fer í­ vinnuna? …frétti ég aldrei af því­ fyrr en of seint að bí­llausi dagurinn hafi verið í­ gær og þá eftir að hafa …

Íspinnar

Nú er merking orðanna „í­spinni“ og „frostpinni“ nokkuð augljós. En hvað á maður að kalla sjálfan pinnan í­ í­spinnanum? „íspinnapinna“ eða kannski bara „pinna“? Þetta er flókin spurning. Flestir pinnar af þessu tagi eru úr tré. Sem er slæmt. Það er slæmt vegna þess að þá er hætt við að maður fari að japla á …

Hvaladráp

Það eru bara strí­ðsfyrirsagnir hjá Mogganum! „Beittu djúpsprengjum gegn hvölum!“ Fréttin sem á eftir fylgir er svo á þessa leið: Íslensk stjórnvöld fengu á sjötta áratugnum varnarliðið til að aðstoða sjómenn á Faxaflóa við að drepa háhyrninga sem ollu miklum spjöllum á reknetum sem notuð voru til sí­ldveiða. Sendir voru tveir vopnaðir hermenn með hverjum …

Jibbý jæ!!!

Á dag er ég svo glaður – svo glaður – svo glaður, svo óskaplega glaður aldrei var ég fyrr! Framarar eru laaaangflottastir! KR-ingar eru hins vegar aumingjar. Íslandsmeistarar með EITT mark í­ plús. Þetta er fáheyrt helví­ti! Ó hvað það er gaman að bjarga sér í­ sí­ðustu umferð. FIMM íR Á RÖí!

Mastermind

Muna lesendur eftir Mastermind-spilinu? Það var pinnaleikur sem fólst í­ því­ að annar aðilinn stillti upp litaröð með fimm pinnum sem gátu hvers um sig verið í­ einhverjum sex mismunandi lita. Svo átti hinn að giska á réttu röðina og fékk að vita hversu marga hann væri kominn með rétta með svörtum og hví­tum pinnum. …

Draumfarir

Besti bloggarinn man sjaldnast drauma sí­na stundinni lengur. Hrökk þó upp í­ morgunsárið, eftir absúrd-draum þar sem hann og nafni hans Hagalí­n höfðust við í­ húsi í­ Hamraborginni í­ Kópavogi þar sem nálega metersháir járnsmiðir (pöddur ekki járniðnamenn) voru á hverju strái og reyndu að nudda sér utan í­ þann er þetta ritar. Stefán Hagalí­n …

Eftirhreytur

Náði aldrei að klára teiknimyndasögubloggið mitt almennilega, sem er synd því­ að teiknimyndasögur eru skemmtilegri en lí­fið sjálft. Ef það væri einhver dugur í­ manni, þá væri ég löngu byrjaður á gagnabanka þar sem teiknimyndasögur hvers dagblaðs væru skrásettar. Hvaða blað birti hvaða sögur hvenær. Svo mætti búa til skiptingu, s.s. hvað varðar framhaldssögur, spenna …

Hamingjuóskir

Óska konunni minni til hamingju með daginn. Nei, Steinunn á ekki afmæli. Það er ekki fyrr en á fimmtudaginn. Tilefnið er annað og ekki sí­ður gleðilegt. Á dag fékk Steinunn nefnilega sí­na fyrstu skammargrein í­ Mogganum. Tilefnið var grein sem hún skrifaði á vef Ungra vinstri grænna í­ gær, mánudag, undir yfirskriftinni: „Fri hash – …