Jæja, þá er ég einn í kotinu. Steinunn flaug austur í gær og ég fylgi í kjölfarið á fimmtudaginn. Komum aftur á sunnudagskvöld, eftir jarðarför.
Næstu dagar munu einkennast af stressi og þeytingi. Ekki kjöraðstæður til að sinna verkefnum sem reyna á hugarstarfsemina. Vonast þó til að heyra í Andrési Indriðasyni í dag eða á morgun. Á dag rennur nefnilega út skráningarfrestur í GB. Þegar fjöldi keppnisliða liggur fyrir, verður einnig ljóst hversu margar viðureignirnar verða nákvæmlega og hvaða reglur gilda um hvaða stigaháu taplið eiga kost á að komast áfram í keppninni.
* * *
Luton vann Blackpool á útivelli um helgina. Erum í sjötta sæti sem stendur og þar með í umspilssæti. Næsta laugardag tökum við á móti Barnsley-liði Guðjóns Þórðarsonar. Sigur þar myndi gera mótið spennandi svo ekki sé meira sagt.