Törn

Nú er törn.

Fimmtudagur: Ammæli hjá Svenna á Hjónagörðunum. Ætli ég hitti ekki Gneistann og Eygló þar?

Föstudagur: Úrslitaleikur GB. Er farinn að verða verulega spenntur. Held reyndar að þetta verði besta keppnin mí­n í­ ár. 1-2 spurningar sem ég er ekki alveg nógu ánægður með, en það er miklu betra hlutfall en verið hefur.

Laugardagur: Fyrirlestur um Svarta dauða kl. 11 í­ húsi Lyfjasögusafnsins á Seltjarnarnesi. Hef þegar samið erindið. Held að það sé ágætt.

Útskriftarfögnuður Félags nema í­ rafiðnum á Minjasafninu.

Sjötugsafmæli Sigurðar Egils Guðmundssonar, vinnufélaga mí­ns.

Sunnudagur: Fermingarveisla.

– Ef ég slepp út úr helginni lifandi, þá verð ég að ganga í­ að mæla upp baðherbergið á Mánagötunni og fara að láta fagmenn koma með tillögur að því­ hvað sé hægt að gera.

Jafnframt þurfum við Palli að punda út barmmerkjum fyrir Skí­ðavikuna á ísafirði. Það gerum við bara vegna þess að umsjónarmaðurinn er herstöðvaandstæðingur. Synir GSP vinna ekki fyrir hvern sem er.

* * *

Hvers vegna reynir enginn að selja mér miða á Pixies, þótt á uppsprengdu verði væri? (stefan.palsson@or.is)