Eiríkur Rögnvaldsson bendir réttilega á það í athugasemd við færslu gærdagsins að það er ekki til neitt sem heitir Smyrilsgata heldur SmyrlisVEGUR. Þetta leiðir mig þó til vangaveltna um götunöfn í póstnúmeri 107 sunnanverðu.
Sá sem skipaði niður götuheitum í þessum hluta Vesturbæjarins hefur verið með skæðan athyglisbrest. Á það minnst hélst viðkomandi illa á þemum.
* Á miðju Grímstaðaholtinu er Grímshagi, sem heitir svo eftir holtinu. Látum það gott heita.
* Norðan Grímshaga tekur svo við fuglaþema. Þar má finna: fálka, smyril, örn og þröst (spot the odd bird out). – Ekki eru þarna fleiri fuglar. Hvaða sauður getur ekki talið upp fleiri fugla?
* Sunnan Grímshaga eru Lynghagi og Starhagi. Ókey, lyng og starir er svo sem allt í lagi og kallast á við Kvisthaga. Allt svona „garðræktar-eitthvað“ og hefur líka vísun í alla trjá-melina norðar í hverfinu. (Birki, víðir, reynir, einir, greni, fura, ösp og birki.) Miðað við mel hljómar þetta reyndar helvíti ´skógivaxið…
* Milli viðardeildarinnar og fuglaríkisins dúkka hins vegar upp stórskrítin götuheiti. Kvisthagi, Fornhagi, Dunhagi og Hjarðarhagi heita allir eftir sveitabæjum á Norðurlandi. (Af hverju í andsk…?)
* Og til að kóróna vitleysuna er Tómasarhaga plantað niður á miðju svæðinu og það í höfuðið á einhverjum grasbala við rætur Hofsjökuls!!!
En nú mætti einhver góður maður svara áleitinni spurningu minni. Hvers vegna í fjandanum heitir Eggertsgata þessu nafni?