Fór með dæhatstjú-dósina hennar Steinunnar í skoðun. Fékk endurskoðun á hana. ístæðurnar voru assgoti ómerkilegar. Ónýt pera á stöðuljósi og lúið bílbelti. Kommon! Menn hafa sloppið í gegn með miklu verri hluti…
Á hitt ber að líta að við áttum allt eins von á miklu alvarlegri athugasemdum og það getur fjandakornið ekki þýtt mikil útgjöld að kippa þessu í liðinn.
* * *
Málningarstörf í Rafheimum ganga bærilega. Þó reyndist málningarþrjóturinn í Húsasmiðjunni vera illur ráðgjafi. Hann sá ekkert því til fyrirstöðu að við máluðum með vatnsmálningu ofan í grunninn sem til var. Grunnurinn hrindir hins vegar frá sér málningunni og allt er í skralli. Stefnir í að við þurfum að lakka heilan vegg í stað þess að mála. Urr…
* * *
Á fótboltanum í hádeginu þurfti einn liðsmaður að hætta leik eftir að hafa fengið bylmingsskot í punginn. Hvaða sjúklega kímnigáfa náttúrunnar er það eiginlega að skapa manninn með utanáliggjandi eistum, með augljósri slysahættu?
* * *
Á gamla daga voru stóru liðin með í fyrstu umferð í Evrópukeppnunum og engin styrkleikaflokkun átti sér stað. Þá létu allir sér dreyma um Barcelona, Juventus eða Liverpool sem mótherja og urðu hvekktir þegar andstæðingarnir urðu Glentoran, Lens eða Katowice.
Heyrði í hádeginu íþróttafréttamenn himinlifandi yfir að íslensku liðin hefðui fengið skítalið frá Wales, írlandi og Eistlandi. Heimur versnandi fer…
* * *
Um allar trissur er fólk að óska mér til hamingju með einhvern helv. Luton-fána sem á að hafa verið á vellinum í Portúgal í gær. Sef nú alveg á nóttunni yfir slíku.
Viðurkenni þó að það er að koma í menn skjálfti. Byrjum á heimavelli gegn Oldham 14. ágúst. Swindon og Barnsley úti fylgja í kjölfarið og svo Torquay heima.
Tíðindi vikunnar í nýju Kóka-kóla 1. deildinni (lesist: þriðju deildinni) eru hins vegar þau að eitt liðið hefur breytt um nafn.
Wimbledon, sem féll í fyrra, mun eftirleiðis heita Milton Keynes Dons FC. „Dons“-nafnið fær að lafa inni til að friða báða gömlu stuðningsmennina sem enn halda með liðinu, en allir vita að í daglegu tali mun liðið aldrei verða kallað annað en Milton Keynes.