Einhverju sinni mæltist bloggfressið til þess að einingin Billy yrði tekin upp í SI-einingakerfið, enda IKEA orðin þekkt, alþjóðleg stærð.
Þetta er frábær hugmynd og augljóslega myndi hvert Billy skiptast upp í 10 Benno. Keyptum okkur einmitt Benno-geisladiskastand um helgina, til viðbótar við þann sem fyrir var í stofunni. Þörfin var brýn, enda geisladiskahulstrin eins og hráviði um allt stofugólf.
Eftir að búið var að púsla mublunni saman og raða diskunum, kom margt skemmtilegt í ljós. Steinunn var til dæmis að komast að því að við ættum Depeche Mode-disk og raunar tvo fremur en einn.
Verst er að við hjúin virðumst ekki hafa þroska í að eiga tómar hillur. Rukum þess vegna í plötubúð strax í hádeginu á mánudag og keyptum þrjá diska til viðbótar – þrátt fyrir fögur loforð um að halda okkur á mottunni a.m.k. fram yfir Visa-reikning dauðans frá Skotlandsferðinni.
Raunar var sérstök ástæða til að kaupa diskana. Lou Reed og Velvet Underground eru einfaldlega nauðsynlegt ítarefni til upphitunar fyrir tónleikana í ágúst – en við eigum miða!
– og talandi um tónleika: Steinunn mætir á Metallicu. Sjálfur verð ég heima að fylgjast með Grikkjum vinna EM.
* * *
Erna hafi bestu þakkir fyrir notalega kvöldstund. Varð raunar óskaplega þunnur. Kenni Hindberja/hvítvínsbúðingnum um…
* * *
Vil ekkert ræða um íslenska fótboltann. Þetta helvíti gæti lagt hvern mann í rúmið. Hugga mig við væntanlegan Evrópumeistaratitil Grikkja og að æfingatímabilið hjá Luton fer að byrja.
* * *
Óli Jó mætir á skerið í dag. Fagna því allir góðir menn.
* * *
Kosningasjónvarp RÚV var öööömurlegt. Þorstein Joð í stjórnmálaskýringarnar!