Óli Njáll kvartar yfir íbúðalánasjóði. Umsókninni hans var synjað vegna formgalla.
Stend sjálfur í sama stappi. Þegar við fórum í greiðslumatið á sínum tíma vorum við beðin um að setja niður upphæð sem við ætluðum að greiða af eigin sparifé. Það gerðum við samviskusamlega.
Síðar, þegar búið var að ganga endanlega frá kaupverðinu kom í ljós að með því að hækka þá tölu um 300 þúsund kall, þurftum við ekki að sækja um viðbótarlán og spöruðum alls konar pappírsvinnu. Þess vegna varð úr að hækka greiðsluna af sparifénu um þennan 300 þúsund kall og sækja um lægra lán sem þeirri upphæð næmi. – Einfalt, ekki satt?
Onei. Þá eipaði íbúðalánasjóður – þarna var komin 300 þúsund kall sem ekki hafði verið getið um áður!
Nú myndi einhver segja að það sé ekki mál íbúðalánasjóðs að hafa áhyggjur af því hvort við Steinunn eigum inni á bankabók alla þá upphæð sem greiða skal við afsal (hana eigum við og vel rúmlega það). Það er mál milli okkar og tengdapabba. – Nú gerir íbúðalánasjóður t.d. ekki kröfu um að fá það staðfest að við eigum fyrir stimpil- og þinglýsingargjöldum! Og það er alþekkt í fasteignaviðskiptum að hluti af greiðslu er inntur af hendi nokkrum mánuðum eftir kaupsamning, t.d. við afsalsgerð og ekki gera menn kröfu um að sú upphæð sé inni á bók allan tímann. – Látum það þó liggja á milli hluta.
Segjum sem svo að það sé hlutverk íbúðalánasjóðs að meta þessa hluti og þeir eigi að vera varfærnari fyrir hönd tengdapabba en hann sjálfur. Ókey – föllumst á það. – Ef það er raunin, þá ætti íbúðalánasjóður einfaldlega að heimta yfirlit yfir lausafjáreign umsækjenda – en það gerir hann ekki. Reiturinn þar sem við skrifuðum hversu háa upphæð við ætluðum að leggja í íbúðakaupin af sparifé fól EKKI í sér yfirlýsingu um að meiri peningar væru ekki til. – Hver er svo vitlaus að taka hverja einustu krónu af bankareikningnum sínum og selja allar dósirnar og flöskurnar í kjallaranum til að skrapa saman í útborgun? Við erum ekki að tala um 3 milljónir sem galdra átti fram – heldur 300 þúsund!
Og til að bíta höfuðið af skömminni þurfti sjóðurinn ekki annað en kvittun fyrir bankainnistæðu til að afgreiða málið. Sú innistæða hefði hins vegar ekki þurft að vera inni á reikningum nema þetta kortér sem tók mig að redda kvittuninni.
Argh – argh – argh!