Það var ekki bara ruslpóstur sem beið mín á Mánagötunni í gær, heldur tvær bitastæðari sendingar.
Annars vegar var um að ræða Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar, sem innihélt grein sem sýnir fram á að and-hraðakstursauglýsingar virka. Þá voru myndir frá Fáskrúðsfjarðargöngum og gangur Almannaskarðsganga rakinn. íhugavert.
Hins vegar var póstkort – frá Krít, stimplað fyrir viku. Það var frá spurningaliði Verslunarskólans sem fór þangað í vinningsferð sína. Þeir sögðust hlakka til að hitta mig í keppninni næsta vor.
* * *
Barmmerkjagerðartímabilið er hafið. Sat við yfir sjónvarpinu í gær og þrykkti út SHA-barmmerkjum (klassíska: Ísland úr NATO, herinn burt-merkið). Síðar í vikunni gerum við eitthvað nýtt í tilefni af þingsetningu á föstudaginn. Ég verð illa svikinn ef það verður ekki nokkur mannsöfnuður á Austurvelli þá – af ýmsum tilefnum.