Ræddi við bifvélavirkjann áðan. Hann segir að stýrið sé í skralli og að ég muni varla fá það í gegnum skoðun eftir stendur vandamálið með sætið og fleira smálegt.
Við urðum sammála um að hann myndi láta bílinn vaða í skoðun í fyrramálið og svo myndum við sjá til hversu miklar athugasemdir væru gerðar. Á kjölfarið ætti þá að vera hægðarleikur að meta hversu dýrt þetta dæmi yrði. Krossleggjum fingur.
# # # # # # # # # # # # #
The Last of the Famous International Playboys er frábært lag. Ég er búinn að eiga Bona Drag lengi í diskasafninu, en er fyrst núna að átta mig á snilldinni. Þetta gerist stundum með plötur. Þannig var ég búinn að eiga The Queen is Dead í nokkur ár áður en ég uppgötvaði hana fyrir alvöru.
In our lifetime those who kill
the newsworld hands the stardom
and these are the ways
on which I was raised
these are the ways
on which I was raised
but I never wanted to kill
I am not naturally evil
such things I do
just to make myself
more attractive to you
Have I failed?
Snilld
# # # # # # # # # # # # #
Steinunn er á aðalfundi Öryrkjabandalagsins. Kemur eftir dúk og disk. Nenni ég að elda? Nenni ég að skella í þvottavélina? Nenni ég að henda fiskafgöngunum sem eru búnir að liggja alltof, alltof lengi í ísskápnum?
Njah, varla.