Urr. Ruslpóstsían á hotamailnum mínum er ekki að kæta mig. Fyrst í stað var ég ósköp feginn að forritið flokkaði frá meintan ruslpóst. Tvo síðustu daga hef ég hins vegar rambað inn í ruslhólfið og rekist á bréf sem svo sannarlega átti ekki að henda. Seinna dæmið var gjörsamlega út í hött. Ég skrifaði kunningja mínum frá Edinborg, hann svaraði skeytinu, ég svaraði aftur og hann svaraði á ný – nema hvað, að póstforritið ákvað að skilgreina síðara bréfið sem rusl. Þetta er gjörsamlega út í hött!
Verst er að nú geri ég ekki annað en að hugsa um allan þann aragrúa af mikilvægum skeytum frá gömlum vinum og kunningjum sem forritið hefur fargað fyrir mér. Urr…