Les á net-Mogganum að Ronald Reagan hafi sigrað Lincoln í skoðanakönnun um merkasta Bandaríkjamann sögunnar. Getur ein þjóð lýst frati á sjálfa sig með afdráttarlausari hætti?
Hvern hefði maður sjálfur valið? Líklega Thomas Edison.
# # # # # # # # # # # # #
Fréttablaðið upplýsir að Jóhannes Páll II muni á næstunni verða dýrðlingur. Búið er að fá í gegn reglubreytingu og setja á stofn nauðsynlegar undirbúningsnefndir. Það eina sem karlinn á eftir að gera er að framkvæma 1-2 kraftaverk, t.d. með því að lækna krabbamein eða gefa blindum sjón.
Sem sagt: allt það erfiða er búið, núna er bara að ganga frá nokkrum lausum endum.
# # # # # # # # # # # # #
Dyralúgan á heimili mínu er ónýt. Hún gafst endanlega upp einn daginn, þar sem vöndullinn með öllum auglýsingapóstinum og dagblöðunum sem ég hef aldrei beðið um reyndist óvenju þykkur.
Nú spyr ég löglærða lesendur þessarar síðu: get ég átt einhvern kröfurétt á hendur 365 miðlum eða Karli Garðarsyni, fyrir spellvirki og eignaspjöll? Ég er sanngjarn maður og bið ekki um mikið – bara að þeir komi hingað og lagi dyralúguna eða setji upp nýja og fjarlægi blaðabunkann sem ég trassa alltaf að fara með í næsta endurvinnslugám.