Blaðaði í gegnum kynningarpésan frá Þjóðleikhúsinu og sá þar eitt og annað sem gaman væri að skella sér á. Síðustu misserin hefur dagskráin þar lítið höfðað til mín. Þá sjaldan við höfum drifið okkur í leikhúsið hefur það verið í Borgarleikhúsinu hjá Leikfélaginu. Eru þetta áhrif nýja leikhússtjórans?
Nú er ekkert sem heitir – tvær til þrjár leikhúsferðir eru markmið vetrarins!