Ef keyrt verður yfir mig þveran á morgun, þá vil ég ekki pönsur, rjómakökur og kaffi í erfidrykkjunni. Eftir útför Óla var safnast saman í félagsheimili Rafveitunnar þar sem borið var fram bakkelsi, bjór og hvítvín. Smekkfullt hús og fín stemning. Þetta hefði karlinn kunnað að meta.
# # # # # # # # # # # # #
Á dag fékk ég nýju Luton-treyjurnar í pósti, aðal- og varabúninginn. Sýndi Steinunni þetta fullur stolts. Hún lét eins og sér þættu þetta fínar flíkur. Henni lætur margt betur en að ljúga.
Ég mun klæðast þessu við hvert tækfæri. T.d. á föstudaginn kemur þar sem Luton mætir Sheffield Wednesday í beinni útsendingu á Sky. Kemur þar í ljós hvor Björgvin Ingi, Jói og félagar í Uglunum, stuðningsmannaklúbbi Sheff. Wed. á Íslandi eru menn eða mýs – þora þeir að mæta á Ölver?
# # # # # # # # # # # # #
Fáskrúðsfjarðargöngin eru æði. Jarðgöng eru málið – eins og lesendur þessarar síðu hafa lesið oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.
Stjórnvöld eiga nú þegar að taka ákvörðun um hvar næstu göng á eftir Héðinsfjarðargöngum skulu vera. Það er sanngirnismál að Vestfirðingar fái þau næstu. Held að Hrafnseyrarheiðin liggi þar beint við, auk þess sem líklega verður að bora einhverja stubba á verstu grjóthrunssvæðunum í Óshlíðinni.
Mín fjölskylda veit allt um það hversu háskalegt grjóthrunið getur orðið í Óshlíðinni. Afi var á sínum tíma fararstjóri í rútu sem lenti í grjóthruni þar og tveir fórust. Hann sagði okkur þá sögu aftur og aftur. Á hvert sinn með sama sársaukanum. Þessi harmleikur lagðist á sálina á honum og gat gosið upp þegar minnst varði. Á þá daga var ekki til neitt sem hét áfallahjálp.