Ef hægt er að ganga að nokkrum hlut vísum í breskum æsifréttablöðum á borð við The Sun (fyrir utan myndir af léttklæddum stelpum og 1-2 fréttum af Beckham) þá eru það fregnir af ólöglegum innflytjendum sem fái skrilljónir í bætur frá ríkinu, vinni á svörtu og stundi hvers kyns óknytti og smáglæpi. Á bland við …
Monthly Archives: október 2005
The Welshman Cometh
Félagi Llion lendir í Keflavík laust fyrir klukkan ellefu í kvöld. Til að vera góður gestgjafi tek ég nokkra frídaga í að rúnta í sundlaugar, að Reykjanesvita o.þ.h. Skemmtanalífið í Reykjavík á miðvikudagskvöldi mun vonandi sannfæra okkar mann um að ég búi í París norðursins. Hvað gerir maður annars við túrista í byrjun nóvember? # …
Afturelding
Íslendingar eru búnir að læra að semja reyfara. Um það er víst ekki lengur deilt og sölutölur fyrir jólin taka af öll tvímæli. Lesendur láta það ekki trufla sig lengur að æsilegir eltingaleikir við morðingja og misyndismenn eigi sér stað í Laugarásnum, að glæpaklíkur hreiðri um sig í Teigahverfinu eða að gripið sé til vopna …
Lögfræðilegt álitamál
Laugardagsmynd Sjónvarpsins var The Royal Tenenbaum´s. Við Steinunn höfðum ekki séð hana áður. Fín mynd. ístarsamband systkina er veigamikill þáttur í plottinu. Þó er ekki um eiginleg systkini að ræða, því konan hafði verið ættleidd. Út frá þessu spruttu skringilegar vangaveltur á Mánagötunni. Hvernig tekur löggjafinn á málum sem þessum? Væntanlega eru ekki til lög …
T&C
Technology & Culture, uppáhaldstímaritið mitt kom í gær. Aðalgreinin fjallar um hugmyndir manna um öryggismál við framleiðslu ísskápa og kælikerfa í upphafi þeirrar atvinnugreinar. Svo er önnur grein um þátt dílasóttvarna við þróun DDT. Þetta eru greinar sem kalla á tilhlaup áður en maður leggur til atlögu. # # # # # # # # …
Vinnuetík
Steinunn er mikil knattspyrnuáhugakona. Hún horfir hins vegar aldrei á fótbolta og fylgist ekkert með úrslitum leikja. Virðist staðhæfingin hér að ofan eitthvað mótsagnakennd? Tja, hún er varla mikið skrítnari en allar fréttirnar af nýju könnuninni sem sýnir fram á að Íslendingar séu gríðarlega Kristnir, þeir leggja bara enga rækt við trú sína. Íslendingar fara …
Slappir Madridingar
Horfði á Deportivo leika sér að Real Madrid í kvöld. Úff hvað þetta milljónalið getur verið slappt í vörninni. Ég er samt ekki að ná því að detta oní spænska boltann. Of mikið af kvöldleikjum um helgar. Það er ekki alveg tíminn fyrir fótboltagláp hér á Mánagötunni. # # # # # # # # …
Too Many Daves
Dr. Seuss er einhver flottasti barnabókahöfundur sem uppi hefur verið. 23 Davíðssálmur er snilldarkvæði: Did I ever tell you that Mrs. McCave had twenty three sons and she named them all Dave? well, she did. And that wasn’t a smart thing to do. You see, when she wants one and calls out ‘yoo-hoo! come into …
Gráðostur
Gráðostur er furðulegt fyrirbæri. Nú er hann sannarlega ekki vondur, en það er eiginlega ekki hægt að segja að hann sé góður heldur. Allt fer þetta eftir samsetningum. Nú er Gleym-mér-ey-borgarinn á Vitabar besti hamborgarinn í bænum, sem ekki verður skýrt með öðru en gráðostinum. Gráðostapítsur eru sömuleiðis fínar. Ofnbakaði laxinn í gráðostasósunni sem ég …
Nýr Ástríkur
Jæja, nú eru fréttir farnar að berast af nýjustu ístríks-bókinni frá Uderzo. Hún verður sú 33. í röðinni og líklega ein sú sérviskulegasta. Fregnir herma nefnilega að geimverur, sem augljóslega eiga að vera fulltrúar bandarískrar sjoppumenningar, heimsæki Gaulverjabæ til að forvitnast um hvernig standi á hinum yfirnáttúrulegu kröftum íbúanna. Hljómar ekkert sérstaklega vel. Einungis 20 …