Á dag gerðum við pabbi heiðarlega tilraun til að setja upp ísskápinn í nýja eldhúsið. Skápurinn sá arna var öfugur, þ.e. hurðin opnaðist í vitlausa átt. Þessu ætluðum við að kippa í liðinn með skrúfjárni og leiðbeiningabæklingi á sænsku. Um það leyti sem við héldum að björninn væri unnin, reyndist einn pinni sem okkur var lífsins ómögulegt að leysa. Það kallar á ferð í Bræðurna Ormsson á morgun til að fá sérfræðing á svæðið. Ergilegt.
Nýi dúkurinn á eldhúsinu er hins vegar stórglæsilegur. Ekki spillir fyrir að verkið var unnið af mönnum Þorleifs Gunnlaugssonar dúklagningameistara, sem einmitt var að tryggja sér þriðja sætið í forvali VG. Er þetta kannski mál fyrir DV: frambjóðandi leggur dúk fyrir formann kjörstjórnar? – Ég treysti því amk. að verðgildi íbúðarinnar muni snaraukast út á dúkinn þegar Þorleifur kemst í borgarstjórnina.
# # # # # # # # # # # # #
Sé að QPR og Crystal Palace eru að spila annað kvöld í beinni á Sky. Sýn klikkar á að senda út leikinn. Er málið að skella sér á Ölver? Sjáum til hvað QPR-menn vilja gera.
# # # # # # # # # # # # #
Sá „Kalla kaffi“ í kvöld í fyrsta sinn. Það er gott að vita að Íslendingar geta búið til norska grínþætti einir og óstuddir. Þá þurfum við ekki að flytja þá inn í framtíðinni.