Bókajól

íður en jólaverslunin fer á fullt er ég að spá í­ að rölta niður í­ Mál og menningu og skipta Söguatlasnum sem ég fékk í­ verðlaun í­ spurningakeppninni hans Ólafs Bjarna. Hef verið að veta því­ fyrir mér hvaða bækur skuli velja í­ staðinn. Þar sem Jón Ólafur ísberg er annar af höfunudum Söguatlasins finnst mér við hæfi að taka aðra bók eftir hann – Heilbrigðissöguna sem ég sá auglýsta í­ Bókatí­ðindum en annars ekkert heyrt um. Kannski hún sé enn ekki komin úr prentun.

Þá verð ég eiginlega lí­ka að eignast bókina um sögu Stærðfræðinnar. Ekki seinna vænna að fara að undirbúa kennsluna fyrir næsta misseri.

# # # # # # # # # # # # #

Gí­sli ísgeirsson er með fí­na spurningakeppni. Ég er kominn á toppinn eftir fimm umferðir. Þá er bara að halda sjó næstu fimmtán umferðirnar…

# # # # # # # # # # # # #

Allt gengur Luton í­ mót um þessar mundir. Töpum hverjum leiknum á fætur öðrum og erum að renna niður töfluna.

Á Skotlandi virðist Hearts vera að gefa eftir í­ baráttunni við Celtic. Jafntefli í­ dag gegn Aberdden í­ fyrsta leik Grahams Rix í­ stjórastólnum. Hann á ekki sjö dagana sæla. Stuðningsmennirnir eru æfir yfir ráðningu hans, enda verður honum seint fyrirgefið að hafa hlotið dóm fyrir að sænga hjá unglingsstelpu.