Lóa

íður en Pétur Rasmusen og frú tóku sig til og stöðluðu nöfnin á söguhetjum Andrésblaðanna, mátti sjá undarlegar útgáfur af nöfnum ýmissa Disney-persóna í­ blöðum og bókum.

Chip & Chap, heita í­ dag Snar & Snöggur – en hafa einnig gengið undir heitinu Snoðinn og Loðinn.

Ripp, Rapp og Rupp hétu Tikk, Trikk og Trakk í­ smábók sem ég á einhvers staðar heima.

Og Fetmúli hét ýmsum furðunöfnum – s.s. Grani eða Feiti-múli.

Haraldur gerði fræga barnaplötu sí­na um lí­fið í­ Skrí­plalandi – en gafst sí­ðar upp fyrir strumpanafninu.

– Held samt að verðlaunin fari til Moggans sem birti árið 1946 barnasögu eftir Astrid Lindgren um Lóu Langsokk.